Bókhaldsþjónusta - Skattskil - Reikningsskil - Ráðgjöf
Síðumúla 13, 108 Rvk - Sími: 534-0040, Fax: 534-0043 - skyrslur@skyrslur.com
Skýrslur & skil eru alhliða bókhalds- og ráðgjafafyrirtæki á sviði fjármála. Fyrirtækið veitir margvíslega þjónustu og ráðgjöf á sviði fjármála, skatta og reksturs, bæði fyrir lögaðila (fyrirtæki) og einstaklinga.
Skýrslur & skil sjá um alla almenna bókhaldsþjónustu fyrir fyrirtæki og rekstraraðila. Þjónustan innifelur færslu bókhalds, útskriftir reikninga, greiðsluþjónustu, launavinnslu, skýrslur, virðisaukaskattskil o.fl.
Skýrslur & skil sjá um alla almenna þjónustu bæði fyrir einstaklinga og lögaðila. Þjónustan innifelur skattframtöl, skattskil, áætlanir, launaframtöl og launamiða, ársreikninga o.fl. Sjáum einnig um meðhöndlun á kærum vegna álagningar.
Skýrslur & skil sjá um ársuppgjör, ársreikninga og ársskýrslur o.fl. Sjáum einnig um árshlutauppgjör og slitauppgjör.
Skýrslur & skil gefa alla almenna ráðgjöf til fyrirtækja og einstaklinga s.s. áætlanagerð, stofnun og slit fyrirtækja, aðstoð við kaup og sölu fyrirtækja ásamt allri almennri fjármálaþjónustu.